Du är här
2020-10-28
Islandsbanki hf.: Afkoma á þriðja ársfjórðungi ársins 2020
Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs 2020 (3F20)
- Hagnaður af rekstri Íslandsbanka eftir skatta nam 3,4 ma. kr. á 3F20 samanborið við 2,1 ma. kr. á 3F19. Arðsemi eigin fjár var 7,4% á ársgrundvelli (3F19: 4,7%).
- Hreinar vaxtatekjur jukust um 1,4% á milli ára. Vaxtamunur var 2,5% samanborið við 2,6% á 2F20. Hreinar þóknanatekjur jukust um 12,3% á milli ára sem skýrist af hærri tekjum frá eignastýringu, fjárfestingabankastarfsemi og verðbréfamiðlun en einnig vegna sölu Borgunar hf. þar sem eyðingarfærslur fyrsta árshelmings voru bakfærðar í kjölfar sölu dótturfélagsins. Hrein fjármagnsgjöld voru 255 m.kr. (3F19: 602 m.kr.).
- Stjórnunarkostnaður lækkaði um 8,9% sem skýrist af áframhaldandi kostnaðarhagræðingu og aðgerðum fyrri tímabila. Kostnaðarhlutfall bankans var 46,7% á 3F20 (3F19: 56,3%) og uppfyllir því markmið bankans um að kostnaðarhlutfall skuli vera lægra en 55%.
- Neikvæð virðisbreyting útlána á 3F20 nam 1,1 ma. kr. og tengist að mestu leyti áhrifum af COVID-19 faraldrinum og uppfærslu efnahagssviðsmynda.
- Útlán til viðskiptavina jukust um 37,0 ma. kr. á fjórðungnum þar vegur þyngst aukning húsnæðislána. Innlán viðskiptavina jukust um 17,4 ma. kr. á fjórðungnum aðallega vegna aukningar í innánum frá einstaklingum og lífeyrissjóðum.
Helstu atriði í afkomu á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 (9M20)
- Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3,2 ma. kr. (9M19: 6,8 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár eftir skatt var 2,4% á ársgrundvelli (9M19: 5,1%).
- Minni hagnaður skýrist aðallega af neikvæðri virðisbreytingu útlána að fjárhæð 7,0 ma. kr. en mat á væntu útlánatapi byggist meðal annars á ítarlegu mati á áhrifum COVID-19 faraldursins á útlánasafn bankans. Að auki námu fjármagnsgjöld 2,2 ma. kr. sem má að mestu leyti rekja til óhagfelldra aðstæðna á mörkuðum á fyrsta ársfjórðungi.
- Hreinar vaxtatekjur jukust um 2,4% samanborið við 9M19 og vaxtamunur var 2,6% (9M19: 2,7%). Hreinar þóknanatekjur drógust saman um 3,7% miðað við sama tíma í fyrra sem má helst rekja til minni kortaveltu í kjölfar COVID-19.
- Stjórnunarkostnaður dróst saman um 7,6% frá 9M19 sökum fækkunar stöðugilda, hóflegra launahækkana og lækkunar á flestum kostnaðarliðum. Kostnaðarhlutfall var 55,3% á 9M20 (9M19: 57.5%).
- Útlán til viðskiptavina námu 970 ma. kr. í lok september og jukust um 7,9% frá áramótum eða um 70,7 ma. kr. Aukningin er að mestu tilkomin vegna aukinna húsnæðislána og gengislækkunar krónu á árinu. Hlutfall lána með laskað lánshæfi á stigi 3 nam 3,3% (vergt bókfært virði) í lok 9M20 samanborið við 3,6% í lok 6M20.
- Innlán frá viðskiptavinum námu 699 ma. kr. í lok 9M20 og jukust um 13,0% frá áramótum eða um 80,3 ma. kr. Aukningin stafar að mestu leyti af auknum innlánum einstaklinga og lífeyrissjóða. Engin útgáfa skuldabréfa í erlendum gjaldmiðlum fór fram á tímabilinu þar sem lausafjárhlutföll í erlendum gjaldmiðlum eru sterk. Bankinn mun þó áfram skoða möguleika á útgáfu og endurkaupum ef fýsilegar aðstæður koma upp.
- Heildareiginfjárhlutfall bankans var sterkt og nam 22,2% í lok 9M20, eiginfjárhlutfall þáttar 1 var 19,4% og vogunarhlutfall var 13,4%.
Lykiltölur
3F20 | 3F19 | 9M20 | 9M19 | 2019 | ||
REKSTUR | Hagnaður eftir skatta, ISKm | 3,361 | 2,086 | 3,230 | 6,795 | 8,454 |
Arðsemi eigin fjár (eftir skatta) | 7.4% | 4.7% | 2.4% | 5.1% | 4.8% | |
Vaxtamunur (af heildareignum) | 2.5% | 2.7% | 2.6% | 2.7% | 2.8% | |
Kostnaðarhlutfall¹ | 46.7% | 56.3% | 55.3% | 57.5% | 62.4% | |
30.09.2020 | 30.06.2020 | 31.03.2020 | 31.12.2019 | 30.09.2019 | ||
EFNAHAGUR | Útlán til viðskiptavina, ISKm | 970,309 | 933,320 | 923,850 | 899,632 | 909,175 |
Eignir samtals, ISKm | 1,328,724 | 1,303,256 | 1,255,691 | 1,199,490 | 1,233,855 | |
Áhættuvegnar eignir, ISKm | 942,339 | 923,133 | 911,375 | 884,550 | 912,843 | |
Innlán frá viðskiptavinum, ISKm | 698,610 |
Tala om vad ni tycker
Tala om vad ni tycker
Skrivet av admin ons, 2016-03-30 09:46
Ni är just nu inne på en betaversion av nya aktiespararna. Lämna gärna feedback på vad ni tycker i formuläret nedan.